Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. desember 2014 var lagður fram tölvupóstur skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 9. desember þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsfulltrúa á umsókn Studio Granda dags. 5. desember 2014 um flutning á húsi sem stendur á lóð nr. 9 við Vegamótastíg á lóð nr. 62 við Einarsnes. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. desember 2014.