Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. maí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja létt hjólaskýli sem verður Mhl. XX úr stáli klætt hálfgegnsærri plastklæðningu, óeinangrað og óupphitað á lóð Landsspítalans við Hringbraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. maí 2019.
Stærð: 51,7 ferm., 200,6 rúmm. Gjald kr. 11.200