Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. mars 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. mars 2015 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að opna lítinn meðtökustað sem sérhæfir sig í að djúpsteikja kartöflur í húsnæðinu á lóð nr. 27 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. apríl 2015.