Stækkun húss
Starengi 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 821
21. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Jóhanns Harðarsonar dags. 22. janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Engjahverfis C hluta vegna lóðarinnar nr. 2 við Starengi. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit vegna viðbyggingar og hækkun hússins um eina hæð. Fyrirhugað er að byggja vindfang við inngang á jarðhæð og stigahús sem aðkomu að viðbyggingu á efri hæð, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 19. janúar 2021. Einnig er lagður fram tölvupóstur Bjargar Ólafsdóttur, Þóreyjar Gylfadóttur og Óskars Pálssonar dags. 20. maí 2021 þar sem og óskað eftir framlengingu á athugasemdafresti.
Svar

Samþykkt er að framlengja athugasemdafrest til 14. júní 2021.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu einnig fyrir hagsmunaaðilum að Starengi 8, 10, 12, 14, 16, 18, 20, 20a, 20b, 24 og 32.