Lögð fram umsókn Jóhanns Harðarsonar dags. 22. janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Engjahverfis C hluta vegna lóðarinnar nr. 2 við Starengi. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit vegna viðbyggingar og hækkun hússins um eina hæð. Fyrirhugað er að byggja vindfang við inngang á jarðhæð og stigahús sem aðkomu að viðbyggingu á efri hæð, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 19. janúar 2021.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.