Fyrirspurn
Kynnt tillaga Landslags ehf. dags. 7. desember 2018 að deiliskipulagi fyrir Stekkjarbakka Þ73. Um er að ræða nýtt skipulag á svæðinu norðan Stekkjarbakka þar sem er skilgreint opið svæði og þróunarsvæði samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Í tillögunni eru skilgreindar nýjar lóðir, byggingareitir og hámarks byggingarmagn á svæðinu. Sýndar eru nýjar aðkomur inn á svæðið og fjöldi bílastæða skilgreint.