Lagðir fram uppdrættir
Yrki arkitekta ehf.
dags. 1. febrúar 2021. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar við Laugaveg 168-176, þar sem gert er ráð fyrir að lóðin Laugavegur 176 verði nýtt undir gististarfsemi og verslun en aðrar lóðir á skipulagssvæðinu eru skilgreindar sem lóðir án heimilda. Forsendur varðandi frekar uppbyggingu á reitnum hafa breyst á þann veg að ekki náðust samningar við lóðarhafa og eigendur fasteigna á lóðum við Laugaveg 168-174. Í ljósi þess hafa orðið umtalsverðar breytingar á skipulagstillögunni sem nú er lögð fram frá skipulagslýsingu og markmiðum þess að lútandi. Á lóðinni við Laugaveg 176 verður heimilt að rífa bakhús og byggja við núverandi byggingar, sjá nánar tillögu.