Samþykkt um skilti í lögsögu Reykjavíkur, skilti í lögsögu Reykjavíkur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 37
15. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga starfshóps varðandi samþykkt um skilti í lögsögu Reykjavíkur dags. 15. febrúar 2019, síðast breytt 10. maí 2019, ásamt korti. Einnig er lögð fram skýrsla Lisku dags. í apríl 2018,  umsögn Íþróttabandalags Reykjavíkur mótt 18. mars 2019 og umsögn Billboard mótt. 15. mars 2019.  Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019. Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. maí 2019. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Jón Kjartan Ágústsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.