Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 20. september 2019 þar sem gerð er athugasemd við birtingu auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda vegna atriða er varðar hljóðvegg og hljóðvist í skilmálum deiliskipulagsins. Einnig bendir stofnunin á nokkur atriði sem æskilegt er að lagfæra. Einnig er lögð fram hljóðskýrsla dags. 1. júní 2018 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2019.
Svar
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2019.Vísað til borgarráðs.
Gestir
Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Komur og brottfarir
- Kl 10:09 tekur Þór Elís Pálsson sæti á fundinum.