Fyrirspurn
Lögð er fram umsókn Arkitekta Laugavegi 164 ehf. dags. 25. september 2018 ásamt bréfi dags. 25. september 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kirkjusands vegna lóðarinnar nr. 20 við Hallgerðargötu. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni ofanjarðar, fjölgun íbúða, fjölgun bílastæð í kjallara o.fl., samkvæmt uppdr. Ask Arkitekta ehf. 27. nóvember 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Frestað.