Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Páls Kristjáns Svanssonar dags. 23. nóvember 2018 um gerð nýs deiliskipulags á reit sem afmarkast af Holtsgötu, Brekkustíg, Framnesvegi og Öldugötu. Markmið fyrirhugaðrar deiliskipulagsgerðar er að byggja á lóðunum nr. 10 og 12 við Holtsgötu og 16 við Brekkustíg vegleg borgarhús, samkvæmt tillögu Birkis Ingibjartssonar arkitekts ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2019.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2019 samþykkt.