Lögð fram umsókn
Kanon arkitekta ehf.
dags. 10. janúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi námsmannagarða við Klausturstíg 1-11 og Kapellustígur 1-13 . Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað um fjórar, bílastæðum er fjölgað um þrjú, byggingarreitum er hnikað til og þeir stækkaðir, hámarksgrunnflötur stigahúss er stækkaður, nýtingarhlutfall breytist og fl., samkvæmt uppdr.
Kanon arkitekta ehf.
dags. 10. janúar 2019.
Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs (nú skipulags- og samgönguráðs) án staðfestingar borgarráðs.
Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.