Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 20. febrúar 2019 ásamt kæru dags. 19. febrúar 2019 þar sem kærð er samþykkt byggingarfulltrúa frá 8. janúar 2019 um að veita byggingarleyfi á lóð nr. 44 við Ægisgötu. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 27. febrúar 2019. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 28. mars 2019. úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 8. janúar 2019 um að samþykkja umsókn um leyfi til að reisa viðbyggingu norðan við einbýlishúsi að Ægisíðu 44 og breyta innra skipulagi þess.