Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar dags. 22. mars 2019 ásamt minnisblaði dags. 21. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi "Skeifan-Fenin" vegna lóðarinnar nr. 1 við Grensásveg. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni vegna uppbyggingar meðfram Skeifunni og breyting notkunar efri hæða fyrir íbúðir, samkvæmt uppdr. Batterísins arkitekta ehf. dags. 22. mars 2019, síðast breytt 20.09.2019. Einnig er lagt fram minnisblað Mannvits dags. 15. mars 2019 um hljóðvist og Greinargerð-Samgöngumat Mannvits dags 17. september 2019.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs