Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 7. maí 2019 ásamt kæru dags. 7. maí 2019 þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2019 að samþykkja leyfisveitingu til að innrétta neyðarskýli fyrir heimilislausa vímuefnaneytendur, koma fyrir hvíldaraðstöðu á 2. hæð, nýrri pallalyftu milli hæða, svölum með hringstiga, og komið verður fyrir nýju bílastæði á lóð nr. 1A við Grandagarð. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 22. ágúst 2019. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 30. desember 2019. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 9. apríl 2019 að samþykkja byggingarleyfi til að innrétta neyðarskýli fyrir heimilislausa vímuefnaneytendur að Grandagarði 1A, koma fyrir hvíldaraðstöðu á 2. hæð, nýrri pallalyftu milli hæða, svölum með hringstiga og nýju bílastæði á lóðinni.