Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 21. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarlaugar, lóð nr. 54 við Hofsvallagötu. Í breytingunni felst að komið er fyrir hundagerði á lóðinni, núverandi grenndargámastöð er fest í sessi og bílastæðum fækkað lítillega, samkvæmt uppdr. Eflu dags. 20. febrúar 2020.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.