Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 16. september 2019 ásamt kæru dags. 13. september 2019 þar sem kærð er samþykkt skipulags- og samgönguráðs 29. maí 2019 og borgarráðs 6. júní 2019 á breyting á deiliskipulagi fyrir Álftamýri 7-9. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 28. október 2019. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 6. apríl 2020: Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar borgarráðs Reykjavíkur frá 6. júní 2019 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Safamýrar - Álftamýrar vegna lóðarinnar nr. 7-9 við Álftamýri.