Hólmasel 2, kæra 131/2019, umsögn, úrskurður
Hólmasel 2 (04.937.7)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 65
4. mars, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 23. desember 2019 ásamt kæru dags. 20. desember 2019 þar sem kærð er afgreiðsla Reykjavíkurborgar. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 30. janúar 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 27. febrúar 2020. Úrskurðarorð: Rétt er að byggingarfulltrúi taki fyrirliggjandi umsókn kæranda til afgreiðslu án ástæðulauss dráttar.  Að öðru leyti er kærumáli þessu vísað frá úrskurðarnefndinni.