Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Skógarhlíðar vegna nýrra undirganga undir Litluhlíð og nýrra göngu- og hjólastíga meðfram Skógarhlíð. Jafnframt er aflagður göngustígur meðfram Bústaðarvegi, samkvæmt uppdrætti
Arkþing - Nordic ehf.
dags. 13. janúar 2020.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.