Lögð fram umsókn
Yrki arkitekta ehf.
dags. 2. mars 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Gufunes áfanga 1 vegna lóðarinnar nr. 11 við Jöfursbás. Í breytingunni felst fjölgun íbúða á lóð úr 130 í 137 og að bætt er við kvöð um aðkomu körfubíla slökkviliðs (neyðarbíla), samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
dags. 2. mars 2020.
Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs nr. 1020/2019.