Lögð fram umsókn
Þingvangs ehf.
dags. 30. apríl 2020 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Brynjureits vegna lóðarinnar nr. 46 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að breytt er texta í 14. málsgrein í kaflanum "Sér ákvæði fyrir einstök hús" þannig að bætt er í textann að heimilt verður að vera með gistiaðstöðu á fyrstu hæð hússins við Hverfisgötu og atvinnustarfsemi og gistiaðstöðu á efri hæðum, samkvæmt tillögu
Urban arkitekta ehf.
dags. 22. apríl 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2020.