Lagt fram erindi frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála dags. 11. maí 2020 ásamt kæru dags. 8. maí 2020 þar sem kærð er útgáfa byggingarleyfis dags. 29. apríl 2020 um byggingu bílskúrs og svala á fasteigninni Langholtsvegur 136. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 26. maí 2020. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 21. ágúst 2020. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 10. september 2019 um að samþykkja leyfi til að byggja bílskúr á lóð nr 136 við Langholtsveg og bæta við svölum og svaladyrum á aðra hæð hússins á lóðinni.