Lögð fram umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 12. nóvember 2020 ásamt greinargerð
Arctic Tours ehf.
dags. 11. nóvember 2020 vaðandi breytingu á deiliskipulagi Hampiðjureits vegna lóðanna nr. 6 og 8 við Mjölnisholt. Í breytingunni felst að sameina lóðirnar nr. 6 og 8, setja einn sameiginlegan geymsluskúr á lóð, setja stigagang með lyftu upp á baklóð/vesturhlið með aðgengi í allar íbúðir ásamt því að kvistir verða samtengdir. Einnig eru lagðir fram tveir deiliskipulagsuppdrættir K.J. ARK slf. dags. 28. október 2020. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. nóvember 2020.