Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 11. janúar 2021 ásamt kæru dags. 10. janúar 2021 þar sem kærð er samþykkt og málsmeðferð Reykjavíkurborgar á kynningu byggingarleyfisumsóknar á byggingu bílskúrs á lóð nr. 12 við Tunguveg 12. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 12. janúar 2021. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 12. mars 2021. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 8. desember 2020 um að samþykkja umsókn um leyfi til að reisa steinsteyptan bílskúr á lóðinni nr. 12 við Tunguveg.