Lagt fram minnisblað Teiknistofunnar Traðar dags. 11. febrúar 2021 afstöðumynd dags. 12. febrúar 2021 vegna greiningar á staðarvali fyrir skólabyggingar á vegum Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2021.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2021, samþykkt. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Birkir Ingibjartsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.