Lögð fram umsókn
Plúsarkitekta ehf.
dags. 1. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bykoreits vegna Hringbrautar 116/Sólvallagötu 77. Í breytingunni felst færsla á innkeyrslu í bílakjallara og minniháttar breytingar tengdar því, samkvæmt uppdr.
Plúsarkitekta ehf.
dags. 4. mars 2021.
Svar
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.
Gestir
Birkir Ingibjartsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.