Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðar Klébergsskóla á Kjalarnesi, Kollagrund 2. Í breytingunni felst að afmörkun deiliskipulags Klébergsskóla er breytt, vegna breytingar á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, þannig að skipulagsmörk sem snúa að Vesturlandsvegi færast í átt að skólanum um u.þ.b. 5 metra, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021.