Samþykkt er að kynna lýsingu að deiliskipulagi í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun, Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun, Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og Veitum. Einnig skal kynna hana fyrir almenningi.Vísað til borgarráðs.