Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 28. maí 2021 ásamt kæru dags. 27. maí 2021 þar sem kærð er staðfesting borgarráðs á synjun skipulags- og samgönguráðs frá 5. maí 2021 um skiptingu lóðarinnar nr. 31 við Reykjavíkurveg. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 29. júní 2021. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 29. október 2021. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 20. maí 2021 um að synja um skiptingu lóðarinnar að Reykjavíkurvegi 31.