Hringbraut um Vesturbæ, lækkun hámarkshraða og aðrar umferðaröryggisaðgerðir
Hringbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulags- og samgönguráð nr. 26
30. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Eyþór Laxdal Arnalds, Valgerður Sigurðardóttir og Ólafur Kr. Guðmundsson sitja hjá við afgreiðslu málsins og bóka:  „Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja ríka áherslu á bætt umferðaröryggismál í hverfum borgarinnar. Ennfremur að borgin framfylgi ákvörðunum sínum með markvissum hætti. Þann 28. maí 2009 var eftirfarandi samþykkt í borgarráð vegna sama málefnis.  “Borgarráð samþykkir að gerð verði úttekt á hraðakstri og kappakstri í borgarlandinu og gerðar tillögur að úrbótum og frekari stefnumörkun borgarinnar um hraða umferðar innan borgarlandsins í ljósi umferðaröryggisstefnu borgarinnar, m.a. með hliðsjón af slysum. Úttektin verði unnin í samráði við lögreglu, rannsóknarnefnd umferðarslysa og tryggingafélög, íbúa og aðra hagsmunaaðila, eftir atvikum. Tillögunum er vísað til umhverfis- og samgönguráðs.” Ekki er vitað til þess að þessar tillögur hafi verið unnar og niðurstöðum skilað til borgarráðs. Árið 2015 var samþykkt 25. nóvember í USK að skipa starfshóp til að meta umferðarhraða vestan Kringlumýrarbrautar sem skildi skila áliti 1. mars 2016 varðandi umferðarflæðis, umferðaröryggis og umhverfisþátta. Í janúar 2017 var skilað áliti hópsins, ásamt séráliti minnihlutans. Áður en til lækkunar á hámarkshraða kæmi, skyldi tillögur kynntar fyrir Samgöngustofu, Vegagerðinni, Strætó bs. , Sambandi Sveitarfélaga, FÍB., LHM. og viðkomandi hverfisráðum, áður en slíkt kæmi til framkvæmda. Þetta samráð hefur ekki átt sér stað. Úrbætur eru brýnar en vanda þarf til verka, en því miður liggur engin umsögn samráðsaðila fyrir fundinum.” 
Svar

Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins Baldur Borgþórsson bókar: “Hringbraut um Vesturbæ, lækkun hámarkshraða og aðrar umferðaröryggisaðgerðirHámarkshraði á þessum hluta Hringbrautar er í dag 50 km/klst. Skv. hraðamælingum lögreglu (tímabundið eftirlit með hraðamyndavél) frá síðustu árum er meðalhraði bílaumferðar á bilinu 42-48 km/klst. en meðalhraði brotlegra 62-64 km/klst. og mesti hraði brotlegra 70-84 km/klst.Miðflokkurinn tekur undir nauðsyn þess að  umbætur verði gerðar á svæðinu, en eins og sjá má á ofanrituðu eru langflest slys á svæðinu tilkomin vegna þess að hámarkshraði er ekki virtur og ekið er gegn rauðu ljósi. Við setjum því spurningamerki við hvort rétt er að lækka hraða á svæðinu úr 50km á klst. í 40km á klst.”