Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar dags. 15. apríl 2019 með ósk um heimild til verkhönnunar á aðskildum göngu- og hjólastíg samsíða Eiðsgranda frá Hringbraut að sveitarfélagsmörkum Seltjarnarness.
Samþykkt.
Svar
Skipulags- og samgönguráð ásamt áheyrnarfulltrúum ráðsins bóka. Stígagerðin er hluti af hjólreiðaáætlun og aðgerðaáætlun Græna netsins og mikilvægt að hönnunin og framkvæmdin taki mið af því.