Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skipulags- og samgönguráði óska eftir því að skoðað verði að kaupa leiguskápa fyrir reiðhjól sem hægt er að staðsetja á fjölförnum stöðum. Líkt og við sundlaugar, í bílastæðahúsum og við Nauthólsvík. Við höfum nú þegar ráðist í miklar framkvæmdir til þess að efla hjólreiðar í borginni. Læstir leiguskápar fyrir reiðhjól er hægt að finna víða í löndum í kringum okkur og myndu verða góð viðbót við þá þjónustu sem við veitum þeim fjölmörgu sem velja það að nýta sér hjólreiðar sem ferðamáta í Reykjavík. Frestað.