Fyrirspurn
Lögð er fram tillaga til samþykktar dags. 28. ágúst 2019 frá umhverfis- og skipulagssviði, skrifstofu Samgöngustjóra og borgarhönnunar, bílastæðasjóðs þar sem lagt er til um breytingu á gjaldsvæði 1.
Samþykkt með atkvæðum fulltrúa Pírata, fulltrúa Viðreisnar og fulltrúa Samfylkingarinnar með fyrirvara um samþykki lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins sbr. 2. mgr. 81.gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.