Bílastæðaskortur er vaxandi vandamál í miðborg Reykjavíkur. Íbúar borgarinnar finna fyrir þeim skorti en lítið bólar á úrræðum til úrlausnar á vandanum. Á sama tíma rekur Reykjavíkurborg 6 bílastæðahús með yfir þúsund bílastæðum. Bílastæðahúsin eru alls ekki nógu vel nýtt yfir daginn og notkun þeirra er enn minni á nótinni. Gjaldskylda í bílastæði fellur niður á kvöldin en gjaldskylda er allan sólarhringinn í bílastæðahúsum. Til að stemma stigu við bílastæðavanda miðborgarinnar er því lagt til að það verði gjaldfrjálst að leggja í bílastæðahús á nóttinni, nánar tiltekið milli kl. 22:00 og kl. 8:00. Þannig er hægt að koma til móts við bílastæðavanda miðborgarinnar og auka notkun bílastæðahúsa. Þá er það einnig íbúum til góðs að leggja bílum sínum þar sem þeir njóta skjóls frá veðri og vindum.Frestað.