Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska eftir upplýsingum um kostnað við uppsetningu og frágang smáhýsa við Gufunesveg, meðal annars vegna lagningar hitalagna, rafmagns og veitna. Í ljósi þess að til greina kemur að staðsetning smáhýsanna sé í eða miklu návígi við vegstæði Sundabrautar, og þau gæti því þurft að fjarlægja í náinni framtíð, er einnig óskað eftir mati á ætluðum kostnaði við að fjarlægja húsin og innviði þeim tengdum.
Svar
Leiðrétt bókun frá fundi dags. 10. júní 2020: Vísað til meðferðar Skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Leiðrétt bókun er: Vísað til umhverfis- og skipulagssvið, Skrifstofu framkvæmda og viðhalds.