Fyrirspurn
Flokkur fólksins leggur til að skipulagssvið borgarinnar útfæri leiðir/ umgengnisreglur í samráði við rafskutlaleigur til að fá leigjendur til að ganga frá hjólum þar sem þau skapa ekki hættu. Hjólunum er stundum illa lagt, t. d. á miðja gangstétt þannig að fatlaður einstaklingur í hjólastól eða sjónskertur vegfarandi ýmist kemst ekki fram hjá eða gengur á hjólið. Fólk með barnakerrur lendir einnig í vandræðum með að komast ferðar sinnar. Um 1.100 rafskutlur standa borgarbúum til leigu frá fjórum fyrirtækjum. Fjölga á skutlunum enn meir. Sá ferðamáti sem hér um ræðir hefur rutt sér til rúms í borginni á stuttum tíma. Þetta er góður ferðamáti en enn vantar augljóslega reglur um umgengni. Fylgja þarf lögum í þessu sambandi. Í lögum er skýrt tekið fram að ekki má skilja við hjól þar sem það getur valdið hættu eða óþarfa óþægindum fyrir aðra í umferðinni. Skýrir rammar þurfa að liggja að baki þessum samgöngutækjum sem öðrum. Hætta er á slysum ef ekkert er að gert og fulltrúi Flokks fólksins hvetur skipulagssvið til að bíða ekki eftir þeim áður en tekið er til hendinni við að leysa þetta vandamál.