Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins, um úttekta SWECO á umferðarljósastýringu,umsögn - USK2020120055
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 91
16. desember, 2020
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Kynntar eru niðurstöður úttektar SWECO á umferðarljósastýringum í Reykjavík. Reykjavík fær þar frekar slæma útreið og er aftarlega á merinni ef samanborin við aðrar borgir sem Reykjavík er borin saman við. Fulltrúi Flokks fólksins fýsir að vita hvernig það kom til að Reykjavík er þátttakandi í þessari úttekt og hvað er verið að greiða fyrir að vera aðili að þessari úttekt?  Hvaða fyrirtæki er þetta SWECO og hver eru tengsl þess við skipulagsyfirvöld í borginni? Óskað er eftir að umhverfis- og skipulagssvið finni út hver kostnaður er ef hann liggur ekki fyrir nú. 
Svar

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, Skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar.